Jæja
hef ákveðið að smella inn einni færlsu eða
svo í tilefni af sumarkomunni. Ég ætla að
vara alla þá við sem hafa ekki mikinn áhuga á
Íslenskum fótbolta, þessi færsla er bara um
íslenskan fótbolta, og hún er LÖNG. Þið
hinir skuluð endilega lesa og reyna að njóta og mynda
ykkur skoðanir. Þó það taki kannski
nokkrar lotur.
Sumarið
kom um síðustu helgi þegar Íslandsmótið
í knattspyrnu byrjaði, og það alls ekki á
slæmum nótum. 24 mörk í sex leikjum eða
4 mörk að meðaltali í leik. Þó svo
að ég sé svolítið seinn ætla ég
að spá í deildina núna. Akkúrat núna
er 2.umferðin að klárast. En það á nú
ekki að hafa mikil áhrif á spánna hjá
manni þar sem að nú er loksins búið að
fjölga í deildinni, og þess vegna verða leiknar
22 umferðar á tímabilinu. En smellum okkur í
spánna:
Breiðablik:
Blikarnir eru loks búnir að festa sig í sessi í
deild þeirra bestu, eftir margar tilraunir. Ef ég er
ekki að rugla er þetta þriðja tímabilið
sem þeir spila í efstu deild, en áður höfðu
þeir alltaf fallið úr deildinni. Ólafur
Krisjánsson er efnilegur þjálfari og hefur gerði
fína hluti með liðið á síðasta
tímabili, liðið spilaði oft á tíðum
skemmtilegan fótbolta. Faránlegur mikill fjöldi
jafntefla (9) gerði það hins vegar að verkum að
þeir fóru ekki ofar en 5.sæti. Heilt yfir var
tímabilið þó ásættanlegt en þeir
komust einnig í undanúrslit í Visa-bikarnum.
Litlar
breytingar hafa orðið á leikmannahópnum frá
síðasta tímabili, Blikar hafa misst Gunnar Örn
Jónsson í KR og Kristján Óli Sigurðsson
gerðist þjálfari hjá Hvöt. Marel
Baldvinsson kom síðan heim frá leiðindabænum
Molde. Með það í huga verður hreinlega að
segjast að allt fyrir neðan 5.sæti í ár
verða vonbrigði. Ólafur hefur getað unnið
nánast með sama hóp og hefur styrkt sóknina
með tilkomu Marels. Ef að Breiðablik ná að
klára leikina sína og missa þá ekki niður
í jafntefli eins og svo oft í fyrra þá mun
þeim takast að festa sig í sessi með betri liðum
deildarinnar. Ef þeir gera það hins vegar ekki, eins
og lítur reyndar út fyrir miðað við leikinn
uppá skaga um síðustu helgi, verður stutt í
vonbrigðin. Ég er gríðarlega spenntur fyrir að
sjá hvernig Marel og Prince munu ná saman í
framlínunni í sumar, en þeir haf a báðir
sannað að þeir eru góðir framherjar. Prince
var þó seinn af stað í fyrrasumar, en ætti
nú að vera búinn að aðlagast sambaboltanum
á Íslandi.
FH:
FH-ingar misstu titilinn frá sér í fyrra yfir
til Valsmanna, sem á þeim tímapunkti langaði
einfaldlega miklu meira í hann. Þeir enduðu þó
tímabilið á jákvæðum nótum
þegar að Óli Jó náði loksins í
bikarmeistaratitillinn. Hann tók stuttu seinna við
landsliðinu og Heimir Guðjónsson, fyrrverandi
aðstoðarþjálfari og fyrirliði, tók
við af honum. Það var að mínu mati mjög
rökrétt ráðning sem hefur það í
för með sér að skipulagið á liðinu
hefur ekki breyst mikið í vetur, enda hafði Heimir
verið hægri hönd Ólafs síðan hann
lagði skóna á hilluna. Heimir er kannski eitthvað
spurningamerki, enda er þetta í fyrsta skipti sem hann
er aðalþjálfari. Ég hef hinsvegar ekki nokkra
trú á því að það muni nokkuð
vefjast fyrir honum í sumar, enda býr hann yfir
gríðarlegri reynslu eftir langan feril og aðlögunina
hjá Óla.
Aðeins
hefur kvarnast úr hópnum hjá FH í vetur.
Sverrir Garðarsson fór í atvinnumennsku í
Svíþjóð og Auðun Helgason fór í
Fram. Aðalsöknuðurinn er þó klárlega
í Sverri þar sem að Auðun hefur verið
meiddur síðustu 2 tímabil og er að þar að
auki orðinn 34 ára gamall. Til að fylla skarð
þeirra komu þeir Höskuldur Eiríksson frá
Víkingi R. og Halldór K. Halldórsson, ungur og
efnilegan leikmann, frá Leikni R. Segja má að
Sverrir sé sá eini af leikmönnunum sem fóru
sem spilaði eitthvað af viti hjá þeim í
fyrra, en einnig er hægt að minnast á að
Sigurvin Ólafsson hætti hjá FH og gékk til
liðs við Gróttu í dag. Heimir kallaði síðan
á þá Jónas Grana, markakóng frá
því í fyrra, og Atla Viðar til baka úr
stuttri útlegð hjá Fram og Fjölni. Það
er því að mínu mati ekki hægt að
segja að FH liðið hafi veikst mikið, þó
margir hverjir hafi verið að reyna að gera mikið úr
brotthvarfi Sverris, en ég tel að það muni ekki
gera mikinn óskunda í vörn FH í sumar. Það
er alveg klárt að FH setur markið á að
endurheimta meistaratitillinn í sumar og allt annað fyrir
neðan 2-3 sæti er í raun og veru óásættanlegt.
Þar spila nokkrir þættir inní, eins og til
dæmis að undanfarin ár hefur ekki verið mikil
hreyfing á leikmannahóp FH. Lykilmenn hafa ekki verið
að hverfa úr Hafnarfirðinum í bílförmum,
þó að einn og einn hafi vissulega farið. Í
svipinn man ég reyndar bara eftir þremur leikmönnum
sem hafa spilað einhverja stórrullu hjá liðinu
sem hafa yfirgefið það síðan þeir urðu
islandsmeistarar árið 2004. Það eru Emil
Hallfreðsson, Alan Bogvardt og nú síðast
Sverrir Garðarsson. Það gerir einn lykilmaður fyrir
hvern Íslandsmeistaratitil. Það verður að
teljast ásættanlegt sérstaklega þegar maður
lítur til liða eins og til dæmis ÍA 92-96 sem
máttu þola mun fleiri mannshvörf ár hvert.
Annar þáttur sem hefur mikið að segja í
stapíliseringu liðsins er eins og fyrr segir að það
hefur nánast leikið eftir sama skipulagi síðan
Ólafur Jóh. tók við liðinu og að mun
ekki breytast mikið í sumar. Sem sagt lið sem er mest
allt búið að spila töluvert lengi saman undir
sama skipulagi, og með reynslubolta sem hafa smakkað á
atvinnumennskunni. Það er blanda sem getur varla klikkað
og ef það gerir það verður það
skandall.
Fjölnir:
Ég held svolítið uppá Fjölni, það
var eitthvað gríðarlega sjarmerandi við
Öskubuskuævintýri þeirra í bikarnum í
fyrra. Þrátt fyrir að þeir hafi verið lið
nr. 3 til að fara upp úr fyrstu deildinni í fyrra
tel ég að þeir muni spjara sig best af nýliðunum
í ár. Ásmundur Arnarsson þjálfari
hefur styrkt liðið akkúrat á þeim stöðum
sem þess þurfti, aftarlega á vellinum. Óli
Stefán Flóventsson (frá Grindavík), Ágúst
Gylfason (frá KR) koma með reynslu og gæði aftar
á völlinn ásamt því sem hann fékk
Kristán Hauksson á láni frá Val. Ólafur
Páll Snorrason er síðan kominn aftur heim frá
FH. Það sýndi sig í fyrra að það
er stemming yfir liðinu í Grafarvoginum og sú
stemming mun halda áfram í sumar, það er
merkilega mikið af leikmönnum í Fjölni sem eru
annað hvort uppaldir þar (ef svo má segja með
svo ungt félag) eða hafa verið þar lengi. Það
var til að mynda mjög gaman að sjá Gunnar Má
Guðmundsson skora fyrsta mark Fjölnis í efstu deild,
en hann hefur spilað með Fjölni allan sinn feril. Allt
frá því í 3.deildinni og upp í
efstu deild, þrátt fyrir að hann fengi tilboð
til að fara annað. Hjartað mun því ráða
miklu í sumar hjá Fjölnismönnum. Ég
hef ekki trú á því að þeir verði
í neinum teljandi fallbaráttu í sumar. Ég
trúi því að 7-8 sæti muni verða
þeirra staður í lok tímabils.
Fram:
Þorvaldur Örlygsson er kominn í Safamýrina,
og miðað við fyrstu umferðina virðist hann vera
að gera góða hluti með Fram liðið. Auðun
Helga frá FH, Paul McShane frá Gríndavík
og Jón Þorgrímur Stefánsson frá HK
munu allir styrkja liðið og verða sennilega
byrjunarliðsmenn. Að auki kom Heiðar Geir Júlíusson
aftur frá Hammarby. Þeir misstu aftur á móti
markahæsta mann mótsins í fyrra, Jónas
Grana, en ég held að það muni ekki koma að
mikilli sök. Þorvaldur hefur verið sakaður um að
láta lið sín spila afspyrnuleiðinlegan
fótbolta, þar sem mikil áhersla er lögð
á varnarleikinn. Sem dæmi um það má
nefna Fjarðarbyggðarliðið sem hann þjálfaði
í fyrra en það fékk aðeins á sig
17 mörk í 22 leikjum, en skoraði aðeins 23 mörk
sem er lítið fyrir lið sem var í 5.sæti í
1.deild. Ég vil nú samt taka upp hanksann fyrir Þorvald
og lít svo á að hann leggji, eins og aðrir
þjálfarar, áherslu á styrkleika þess
liðs sem hann þjálfar hverju sinni. Fram skoraði
í það minnsta 3 mörk gegn Fylki í fyrstu
umferð.
Fram
verður á svipuðum slóðum og á
síðasta tímabili, þ.e. 7.sæti eða
eitthvað þar um kring. Það verður þó
ekkert meiriháttar bras í Safamýrinni, sem menn
á þeim bænum munu sennilega taka fagnandi.
Fylkir:
Fylkir stóð sig vel í fyrra og landaði þegar
aflinn var talinn 29 stigum sem gaf þeim 4.sætið og
þáttökurétt í Inter-toto. Nokkrar
breytingar hafa átt sér stað í Árbænum
í vetur. Christian Christiansen er farinn sem og Albert
Ingason og Páll Einarsson, sem er hættur. Í
staðin hefur Leifur Garðarsson fengið Ian Jeffs frá
eyjamönnum, sem er gríðarlegur liðsstyrkur,
Jóhann Þórhallsson (KR), Allan Dyring (FH) og
félaga Gunnars á DV Viðar Guðjónsson
(víkingi). Fylkir er því ekki í slæmum
málum. Þeir hafa ekki misst neitt úr vörninni
hjá sér frá í fyrra, sem var sú
sterkasta og fékk aðeins 17 mörk á sig. Liðið
skoraði hins vegar afskaplega lítið eða aðeins
23 stykki. Leifur hefur aftur á móti verið að
vinna í þeim málum í vetur, eins og má
sjá á þeim leikmönnum sem hann hefur fengið
til sín. Ian Jeffs og Jóhann Þórhalls eru
leikmenn sem geta skapað og gert mörk og það er
það sem Fylkir mun þarfnast á tímabilinu.
Stefnan
fyrir tímabilið hjá Fylki hlýtur að vera
sú að styrkja sig í betri hluta deildarinnar, eftir
að hafa verið í töluverði lægð árin
á undan. Leikmannahópurinn er líka einfaldlega
það góður að það ætti ekki
að óréttanleg krafa. Fjalar Þorgeirsson,
David Hannah, Kristján Valdimarsson, Valur Fannar Gíslason,
Ólafur Stígson (ef hann sleppur við meiðsli),
Peter Gravesen, Ian Jeffs, Jóhann Þórhalls og
Allan Dyring. Þetta er einfaldlega ágætis
upptalning svona á pappírunum. Það á
síðan eftir að koma í ljós hvort að
þessir leikmenn standi ekki undir því og falli í
meðalmennskuna sem hefur einkennt Árbæinn síðustu
tímabil, á undan því síðasta að
sjálfssögðu. Það er reyndar mín spá
að Fylkir verði um miðja deild, þó svo að
byrjuninn hjá þeim sé ekki glæsileg.
Grindavík:
Það hamast allir við að spá Grindvíkingum
falli, það hörðu falli. Milan Stefán
Jankovic er holdgervingur knattspyrnunnar í Grindavík
síðustu 15-20 ár. Í rauninni ætti
knattspyrnudeildin þar í bæ að setja
andlitsmynd af kallinum í merki liðsins, en það
er önnur saga. Gríndarvíkurliðið hefur
orðið fyrir gríðarlegri blóðtöku
fyrir tímabilið en þeir Óli Stefán og
Paul McShane eru báðir farnir og það er því
ekki annað hægt en að vera svartsýnn á
gengi þeirra í sumar. Þeir hafa lítið
styrkt sig og þá helst í útlendingum, sem
virðist reyndar vera sagan endalausa hjá þeim
þvílíkt er vesenið í kringum þá.
Það er líka ótrúlegt að þeir
leikmenn séu fyrst að koma núna þegar mótið
er rétt að hefjast eða jafnvel hafið. Jankovic
virðist samt alveg hvað hann er að gera og hann er með
einn allra skemmtilegasta leikmann sem hefur spilað á
Íslandi, Scott Ramsey, í sínu liði og hann
verður allt í öllu í sumar. Hef alltaf haldið
mikið upp á þann leikmann. Grindvíkingar munu
selja sig dýrt í allt sumar en það mun þvi
miður ekki duga þeim og þeir verða neðstir
þegar uppi verður staðið.
HK:
“Litla” Kópavogsliðið hélt sér uppi
með hjartanu í fyrra, þar fóru fremstir í
flokki Jón Þorgrímur Stefánsson og
markvörðurinn Gunnleifur Gunnleifsson. Jón Þorgrímur
er farinn og Oliver Jaager líka. Gunnar Guðmundsson,
fyrrverandi þjálfari Leiknis F., hefur fengið þrjá
útlendinga í liðið. Annað tímabilið
er oft erfitt fyrir lið eins og HK eftir góðan árangur
timabilið á undan. Þar er hægt að nefna
Ipswich og Reading á Englandi og Þrótt 98 eða
99, að mig minnir, hér á Íslandi. Tímabilið
verður mun erfiðara fyrir HK en í fyrra og þeir
verða í baráttu við að halda sér
uppi fram í síðustu umferð.
ÍA:
Skagaliðið byrjaði ekki vel í fyrra, en eftir að
Guðjón Þórðarsson fékk 2 króata
til liðs við sig fóru hlutirnir að snúast.
Gaui pakkaði í 5 manna vörn og smám saman fóru
stigin að safnast upp. Guðjón veit alveg hvað hann
er að gera, þó ég sé ótrúlega
þreyttur að heyra tugguna um að þegar maður
er ekki með með boltan verjist maður og þegar maðu
er með boltan sæki maður. Lítið brottfall
var úr liðinu í vetur og Guðjón hefur
bætt við einum króata í viðbót,
dana í markið og Stefán Þór er kominn
aftur heim. Markmiðið er því augljóslega
að gera ekki verr en í fyrra þegar þeir enduðu
í 3.sæti og voru eiginlega spútniklið
tímabilsins. Það verður gríðarlegur
styrkur fyrir ÍA að fá Stefán í
framlínuna og það væri gaman ef að Guðjón
myndi hafa Björn Bergmann frammi með honum. Það
verður hins vegar að teljast ólíklegt að
Guðjón fari að nota 2 framherja samtímis í
sama leiknum. Guðjón er heilin á bakvið liðið
og hann er með sterka pósta í liðinu, syni sína
Bjarna og Þórð og svo Stefán. Guðjón
er winner og ÍA verður á svipuðum stað og í
fyrra.
Keflavík:
Keflavík er spurningamerki fyrir tímabilið. Talað
hefur verið um fjárhagserfiðleika hjá
knattspyrnudeildinni og þeir hafa misst bæði Jónas
Guðna og Baldur Sigurðsson af miðjunni frá sér.
Aftur á móti hafa Hörður Sveinsson og Hólmar
Örn Rúnarsson komið til baka frá Danmörku
og það breytir dæminu dálítið. Svo
hefur Kristján Guðmundsson fengið Patrick Redo og Hans
Mathiesen frá Fram. Þeir héldu líka Simún
Samúelsen sem var gríðarlega mikilvægt fyrir
þá. Það er í rauninni ómögulegt
að segja hvað Keflavík gerir í sumar, þeir
gætu hýft sig upp í efri helming deildarinnar en
það er líka spurning hvernig þeir höndla
hlutina ef þeir lenda í mótlæti. Krisján
tókst ekki vel á við það í fyrra
og botninn datt algjörlega úr öllu hjá þeim.
Spiluðu með kúkinn í buxunum helming mótsins.
Ómar Jóhannsson, Guðmundur Mete, Þórarinn
Kristjánsson og Guðmundur Steinarsson eru allir til staðar
ásamt áðurnefndum leikmönnum og það
verður að segjast eins og er að þessi hópur
leikmanna er vel samkeppnisfær hvaða liðum sem er í
deildinni, eins og sannaðist í fyrstu umferðinni.
KR:
Tímabilið í fyrra var algjör martröð
í vesturbænum. Þeir björguðu sér
þó frá falli og réðust í
nauðsynlegar breytingar. Logi Ólafsson var ráðinn
þjálfari og hann tók til við að yngja upp
liðið. Ágúst Gylfa, Sigþór
Júlíusson, Bjarnólfur Lárusson, Sigmundur
Kristjánsson, Jóhann Þórhallsson og Rúnar
Kristinsson eru allir horfnir á braut. Í staðinn
komu Grétar Sigfinnur Sigurðsson (Víkingur), Guðjón
Baldvinsson (Stjarnan), Gunnar Örn Jónsson (Breiðablik),
Jónas Guðni Sævarsson (Keflavík) og Viktor
Bjarki Arnarsson (Lilleström), allt saman menn sem eru annað
hvort góðir eða mjög efnilegir og engar
ellikindur.
KR-ingar
hafa verið duglegir að tala niður væntingar
undanfarið, segjast vera að byggja upp til næstu 3-5
ára og það sé óraunhæft að
tala um titilbaráttu fyrir þetta tímabilið.
Það er nú kannski ekki óraunhæft, en
það er aftur á móti ekkert vitlaust að
stemma allar væntingar af og taka bara eitt skref í
einu. Það hefur kannski vantað aðeins í
vesturbæinn undanfarið? Það er þó
vitamál að KR-ingar munu aldrei segja nei við
meistaratitllinum.
Stefán
Logi Magnússon, Gunnlaugur Jónsson, Grétar
Sigfinnur, Pétur Marteinsson, Gunnar Örn, Viktor Bjarki,
Jónas Guðni, Óskar Örn Hauksson, Björgólfur
Takefusa, Guðjón Baldvinsson, Atli Jóhannsson og
Grétar Hjartarson. Með þennan hóp af
afbragðsleikmönnum er vitanlega ekki vitlaust að gera
ráð fyrir því að KR verði í
baráttu á öðrum enda töflunnar þetta
ár en það síðasta. Svo má ekki
gleyma Guðmundi Péturssyni sem virðist alltaf breyta
gangi leikja þegar hann kemur inná.
Valur:
Hvað er hugsanlega hægt að segja um Valsliðið
sem allir knattspyrnuáhugamen sjá og vita ekki? Willum
Þór Þórsson er að mínu mati
besti þjálfari landsins, það er bara þannig.
Hann hefur unnið allar deildir á íslandi sem
þjálfari og búinn að gera góða
hluti með gamla austurbæjarstórveldið. Menn mega
ekki gleyma því að Valur hafði ekki orðið
Íslandsmeistari í 20 ár þegar hann gerði
þá að meisturum í fyrra. Willum er með
fína blöndu af leikmönnum sem virðast allir vita
hvaða hlutverki þeir gegna í liðinu. Að mínu
mati er Valsliðið það besta á landinu í
dag. Þeir hafa reyndar verið að eiga við einhver
meiðsli á leikmönnum, en það er hluti af
leiknum. Kjartan Sturluson er góður markvörður og
er orðinn aðallandsliðsmarkvörður, en hefur þó
átt það til að gera slæm mistök inná
milli, en það virðist reyndar oft fylgja þeim.
Atli Sveinn Þórarinsson stjórnar vörninni og
er búinn að spila sinn fyrsta landsleik. Bjarni Ólafur
Eiriksson og Birkir Már Sævarsson eru skemmtilegir og
fljótir leikmenn sem hafa venjulega verið bakverðir en
Rene Carlsen hefur víst verið að spila í
vinstri bak og Bjarni Ólafur fyrir framan hann, þeir eru
líka báðir með landsleik á bakinu. Pálmi
Rafn Pálmason virðist síðan vera að stíga
skrefið til fulls í það að vera
afbragðsgóður leikmaður og margir spá því
að hann muni springa út í sumar. Gummi Ben er síðan
sér kapituli útaf fyrir sig, ef hann er meiðslalaus
er hreinlega frábært að horfa á hann og
virðist ekkert vera að slá af honum. Það er
alveg á hreinu að hann væri ekki með jafnmarga
leiki á Íslandi og vera ber ef að hnén á
honum hefðu ekki verið svona brotthætt. Helgi
Sigurðsson er síðan þessi týpíski
markaskorari, það er hans eina hlutverk í hvaða
liði sem er og hann stendur undir því. Hann mun
skora þó nokkur mörk án nokkurs vafa, ef
hann nær sér góðum af lærmeiðslunum
sem hafa verið að hrjá hann í vetur. Svo var
Dennis Bo víst að standa sig í æfingarleikjunum
áður en hann meiddist á móti FH um daginn.
Það er nánast ómögulegt að ætla
að segja eitthvað meira um Valsliðið og í
rauninni hefði hver sem er, sem hefur fylgst með fótbolta,
sagt sér þetta. Sönnunargagnið liggur þó
hér fyrir, Valur eru líklegastir.
Þróttur:
Þróttur er skrýtið félag, með
skrýtna stuðningsmenn. Þeir eru nýliðar í
deildinni eins og Grindavík og Fjölnir. Líkt og
hjá Grindavík verður tímabilið erfitt
hjá Kötturum. Gunnar Oddsson á eftir að sanna
sig almennilega sem þjálfari í efstu deild eftir
að hafa æft sig með Reyni og Þrótt í
neðri deildum. Hann hefur bætt töluvert við liðið
frá síðasta tímabili Sigmundur Kristjánsson
kemur með reynslu úr efstu deild frá KR og Bjarki
Guðmundsson fyllir skarðið sem Ólafur Gunnarsson
skyldi eftir sig í markinu. Jens Elvar Sævarsson er
kominn aftur heim frá Fylki og svo fengu Þróttarar
tvo brassa til liðs við sig sem eru mikið spurningamerki,
svo ekki sé meira sagt. Frammi verður svo Hjörtur
Hjartarsson, markahæsti maður 1.deildarinnar í
fyrra.
Aðrir
leikmenn en þeir sem hafa hér verið taldir upp hafa
ekki mikla reynslu úr efstu deild og virðast fljótt
á litið ekki hafa mikið í hana að gera. Það
má þó ekki gleyma því að
fótbolti snýst um liðsheildina og það er
aldrei að vita en að fyrrnefndir menn geti dregið menn
með sér. Ég get þó ekki gert að
því en það kæmi mér að óvart
ef að Þróttur færi upp fyrir 10 sætið
í haust.
Jæja
þá er það bara spáin eftir:
1.Valur
– Lesið aftur umfjöllunina um Val ef þið
skiljið ekki þessa spá
FH
– Titlalaust tímabil hjá FH, fyrir utan meistarar
meistarana jú
KR
– Lækkun meðalaldurins mun skila sér
ÍA
– Verjast þegar andstæðingurinn er með boltan
og sækja þegar við náum honum (geisp og æl)
Breiðablik
– Óli þarf að taka framfaraskref á næsta
tímabili, og ekki seinna en það til að sanna að
hann sé meira en efnilega góður þjálfari
Keflavík
– Gætu farið hærra, og gætu endað neðar
Fylkir
– Meðallið í anda Newcastle og West Ham?
Fjölnir
– Stuð og stemming verður í fyrirrúmi,
passið ykkur á timburmönnunum á næsta
tímabili
Fram
– Stórveldið í Safamýrinni sefur enn,
enda komið í háa elli
10-11.
HK – Get ekki gert upp hug minn um hvort HK eða Þróttur
falli en ég held meira upp á HK og vona að þeir
tolli uppi, það getur þó farið og hvorn
vegin sem er
10-11.
Þróttur – Sjá að ofan
12.
Grindavík – Eysteinn Hauksson og Scott Ramsey bjarga þeim
ekki. Vona að Scotty verði samt áfram í efstu
deild, er of góður fyrir aðrar deildir eins og staðan
er í dag.